9.4.07

Ooog til þess að hjálpa mér í Köben...

... þá fékk ég þetta lánað hjá Jenný frænku =)



:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


24 dagar í Danmörk

25 dagar í fermingarveislu hjá Hjöddu sys (er sko daginn eftir að ég fer út =)
25 dagar í bjór í Köben
25 dagar í Tívolí
25 dagar í H&M :)
25 dagar í meiri bjór =)

Bara minna sjálfa mig á spenninginn =)

Lubbs

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


29.3.07

Aldur hefur áhrif á fingurna

Jæja... ég er búin að komast að því að aldur hefur slæm áhrif á pikkþörf... ég virðist alltaf vera á leiðinni að blogga en kem mér aldrei í það.. er frekar í því að lesa annarra blogg =) Af mér er annars allt gott að frétta... DANMÖRK eftir rúman mánuð í ferminguna hennar Hjördísar systur og svo stelpuferð til Köben í framhaldi af því. Ég og Ingunn erum líka að byrja í einkaþjálfun (sem er kraftaverk út af fyrir sig þar sem það krefst hreyfingar af minni hálfu) og ég er allavega í því ástandi núna að geta varla gengið fyrir harðsperrum eftir "létta" prufutímann (hóst) Held það segji allt um núverandi líkamsástand mitt og hversu mikið ég þarf á þessu að halda.
Vill líka benda á það að hún nnugni mín er komin í dýrlingatölu þrifadýrlinganna þar sem hún (greyið vissi ekki hverju hún átti von á!) bauðst til að hjálpa mér að taka til í geymslunni (þriggja ára uppsafnað DRASL!!) Það tók okkur þrjá tíma og geymslan mín er svo flott að ég er að hugsa um að flytja niður (allavega minna drasl þar en í íbúðinni :P)
Jæja, fer að gera nýja myndasíðu og skella inn myndum aftur á þessa síðu en þangað til hafið það gott (þið þrjár manneskjurnar sem enn kíkið á bloggið mitt :)

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


14.11.06

Skemmtilegur sími :)

Verð nú að fá að segja frá því að í vinnunni hjá mér stimplar maður sig inn í gegnum síma og soldið ógó skemmtilegt gerðist í morgun . . . ég mæti, stimpla inn kenntitöluna mina og vélræn rödd segir "innstimplun skráð" og svo "til haamingjuu með afmælið" Tíhí.. ég hef aldrei verið að vinna á afmælisdaginn minn svo þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk vélræna afmæliskveðju. GEIGT sniðugt :) En af mér er það að frétta að í dag varð ég 28 ára klukkan 13:50
Leiter

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


5.11.06

Úps

Jæja sorrý Jennsa mín... skömmum tekið ;)
Ég er sem sagt farin að vinna hjá Landspítalanum og er að dýrka það. Fékk vinnu við skemmtilegast í heimi. Auðvitað er það bara mín heppni að ég er búin að vera veik frá degi 2 í vinnunni en mætti nú samt á meðan ég var með flensuna... það var ekki fyrr en ég fékk seinni pestina sem var að ganga sem ég þraukaði bara í fjóra daga....
Annars er mjög lítið að gerast hjá mér þessa dagana... jú ég er orðin stoltur eigandi (og Steini :P) íslenska parsins ss. LIGGA LIGGA LÁ ég á þvottavél OG ÞURRKARA. Búin að þvo allt á heimilinu amk einu sinni síðan á miðvikudag :) Ég er líka búin að gera jólagjafalista, komin yfir taugaáfallið yfir stærð ættarinnar og farin að spá í hvað hægt sé að gefa öllum :)

Það var nú samt eitt ógisslega fyndið sem kom fyrir mig um daginn.... Stína var í heimsókn og ég var að hengja upp þvott þegar síminn hringir... ég svara og það er verið að spyrja um Kristján Pál. Ég skellihló og sagði að hann væri löngu fluttur og í raun hefðum við keypt íbúðina af honum fyrir þremur árum ... svo þegar ég skelli á þá endurtek ég nafnið og sé svipinn á Stínu.. hjólin í heilanum fóru allt í einu í gang og ég fattaði að ég hafði ruglað tengdapabba við Pál sem við keyptum íbúðina af.. ég hringdi aftur í fyrirtækið og leiðrétti þetta við mikinn hlátur frá Stínu og konunni sem ég hafði upphaflega talað við.. :/ Steini og tengdapabbi hafa líka notað þetta sem efnivið í sína brandara (piff)
Jæja... komið nóg í bili

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


9.10.06

Vá hvar á ég að byrja

Jæja... hæ aftur. Ok viðbót við fyrri færslu... ég er nú stolt GUÐMÓÐIR hans Daníels Árna frá 27.ágúst 2006 :)
Er líka búin að fá vinnu... var að frétta það í dag og gæti ekki byrjað á betri degi... þ.e. Föstudeginum 13 ;) á sama föstudegi er ég að fara á Reunion hjá 78 árganginum úr Árbæjarskóla. Þetta mun verða fróðlegur föstudagur!
Verð nú að segja skemmtilega tilviljun. Báðar guðmæður hennar Kötlu Dimmeyjar eignuðust drengi á þessu ári og þeir bera sömu fyrstu nöfn. Svo til að toppa það þá er Steini guðfaðir Daníels Berents sem Stína átti þann 17.apríl og ég er guðmóðir Daníels Árna sem Fanný átti þann 14.júní. Hverjum finnst þetta ekki sniðugt ha?

Ég tók lengsta sumarfrí á ævinni sl sumar þar sem það byrjaði 8.maí og endar núna 13.okt þó svo að hluti af þessu sumarfríi hafi ekki verið by choice ;) svo ég fái nú útrás þá kemur núna jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jeij. Ok þá er þetta komið út. Langaði nefninlega að vera sú útvalda í þessa vinnu sem ég var að fá og svo fékk ég þessar frábæru fréttir í dag :)
En jæja ætla að fara að fá mér kvöldmat meistara :)
seinna

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


20.6.06

Til hamingju Fanný og Sverrir

Innilega til hamingju nýbökuðu foreldrar... þann 14.júní kom lítill skáfrændi í heiminn rétt fyrir 6 um morguninn.... virðist vera á leiðinni í A manneskjuna eins og mamma sín er... hemmmmm
Enn og aftur
TIL HAMINGJU ELSKU FANNÝ OG SVERRIR!!!!!!
og til hamingju Daníel Árni með fallega nafnið þitt :)

Lubba sín biður að heilsa litla frænda

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


TIL HAMINGJU ÉG... :)

Jæja jæja... þann 10.júní útskrifaðist ég frá Háskólanum í Reykjavík ásamt 274 öðrum :P
Ég náði ss prófunum og BSc verkefninu í fyrstu tilraun (fjúkk...) og er nú orðin opinberlega.... VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR (víííí) Komst að því sama dag að ég er ekki hæfur veisluplanari þar sem ég virðist ekki kunna að telja... (ekki segja HR það...) og endaði með 14 fleiri en ég gerði ráð fyrir í kaffiboðinu um daginn. Sem betur fer er Steini frábær reddari og góður í að vinna undir álagi í eldhúsinu svo þetta bjargaðist fyrir horn. Um kveldið var partý sem lukkaðist líka frábærlega þó svo ég hafi ekki farið út úr húsi. Takk allir fyrir frábæran dag og til hamingju rest af útskriftarárgangi!!!

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


25.4.06

Prófin búin í bili

Jæja, þá eru prófin búin í bili, tvær einkunnir komnar í hús en ég hugsa að ég birti þær ekki á prenti fyrr en ég fæ út úr hinum tveimur. Komin á fullt í BS skrif á ný svo vonandi fer súper skýrsla að líta dagsins ljós sem getur svalað fýsnum Hr.Leiðbeinanda svo við fáum ágætis einkunn fyrir hana (annars fer ég að gráta;)
Það er nýr prins búinn að líta dagsins ljós. Hann fæddist 17.apríl kl.8:05 svo ég er farin að titla mig ská "ömmu/móðursystur" þar sem Stína mín (systir Steina míns) var að eignast þennann litla prins. HANN ER SVO SÆTUR AÐ ÉG ER MEIRA AÐ SEGJA FARIN AÐ HLJÓMA EINS OG HALLGRÍMSKIRKJUKLUKKUR Á AÐFANGADAG!! En by ðe vei þá er ekkert svoleiðis á döfinni hjá mér á næstunni. Ég hyggst fá útrás með tíðum heimsóknum til Stínu og Agga og litla prins :D
Ég mun setja inn myndir á síðuna hjá prinsessunni minni þegar ég kemst yfir þær.
Best að halda áfram að vinna í heimildarskrá samkvæmt APA staðli sem er hreint út sagt ógó skemmtilegt (eða hitt þó) Leiter geiter :)

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


10.4.06

Ég handtók Jónsa í Svörtum Fötum af því að ég er gröð!

Þessu stal ég frá nnugni sem stal þessu annarstaðar frá og þetta er ógeðslega sniðugt!
Veldu mánuðinn sem þú fæddist:
Janúar: Ég drap
Febrúar: Ég sló
Mars: Ég svaf hjá
Apríl: Ég horfði á
Maí: Ég fróaði mér með
Júní: Ég slefaði á
Júlí: Ég hló að
Ágúst: Ég stakk
September: Ég skaut
Október: Ég naut ásta með
Nóvember: Ég handtók
Desember : Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn:
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynsæandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu þriðja stafinn í eftirnafninu þínu:
a - af því ég elska súkkulaði
b - af því að mér leiddist
c - af því að buxurnar mínar voru of þröngar
d - af því að þarf alltaf að prumpa
e - af þvía ð hjartað mitt er tveim nr of lítið
f - af því að ég fékk engar gjafir um jólin
g - af því mér finnst egg góð
h - af því að ég er á sýru
i - af því ég missteig mig
j - af því ég er með vörtu
k - af því mér líkar cheer
l - af því að ég var skökk/skakkur
m - af því ég var full/ur
n - af því að mamma sagði mér að gera það
0 - af því ég er hýr
p - af því ég er einmanna
q - af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
r - af því ég er gröð/graður
s - af því mig langar að deyja
t - af því ég hata skóla
u - af því ég þarf að fróa mér
v - af því að ég elska náttfatapartý
w - af því að það róar mig
x - af því að ég elska marmelaði
y - af því að ég elska prump
ö - af því ég er að safna rasshárum

Jæja hvað fékkst þú út ????

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::


Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com